Aðstaða
Stofa
Rúmgóð og björt stofa þar sem þægindi og notalegt andrúmsloft fara saman. Hér er tilvalið að slaka á í þægilegum sófum og njóta fallegs útsýnis yfir Eyjafjörð.
Hér finnur þú snjallsjónvarp með aðgengi að streymisveitum ásamt hátalara sem skapar réttu stemninguna.
Eldhús
Í húsinu er fullbúið eldhús með öllum helstu þægindum, hvort sem þú villt útbúa léttan morgunverð eða njóta góðrar máltíðar.
Við eldhúseyjuna eru barstólar og við borðstofuborðið eru sæti fyrir átta manns.
Nespresso kaffivél
Borðbúnaður, glös og eldhúsáhöld
Bakaraofn, helluborð, uppþvottavél og stór ískápur með frysti
Baðherbergi
Í húsinu eru þrjú baðherbergi, þar af tvö með beinum aðgangi úr svefnherberjum.
Þar má finna sápu, sjampó og hárnæringu ásamt handklæðum, þvottapokum og baðsloppum.
Auk þess er þvottavél og þurrkari í húsinu sem og þvottaefni- svo allt sé til staðar fyrir þægilega dvöl.
Heitur pottur og verönd
Njóttu kyrrðarinnar og slakaðu á í heitum potti í fallegu umhverfi.
Rúmgóð útiverönd með gasgrilli og grilláhöldum, borði og bekkjum.
Við inngang hússins er geymsla þar sem má geyma skíði, snjóbretti eða golfbúnað á öruggan hátt.

