Skilmálar
Velkomin í Heiðina. Við biðjum gesti okkar að kynna sér eftirfarandi skilmála áður en bókun er gerð.
1. Staðfesting bókunar
Bókanir eru gerðar í gegnum vefsíðuna okkar, í tölvupósti eða í gegnum önnur bókunarkerfi.
Bókun telst staðfest þegar greiðsla eða áskilin fyrirfram greiðsla hefur borist og samkomulag hefur náðst um upplýsingar og skilmála bókunarinnar.
2. Afbókunarskilmálar
Afbókunarskilmálar fara eftir fjölda bókaðra húsa.
Bókun á einu húsi
Meira en 14 dögum fyrir komu: Full endurgreiðsla (100%).
Frá 7 til 14 dögum fyrir komu: 50% afbókunargjald.
Innan við 7 dögum fyrir komu: Engin endurgreiðsla (100% afbókunargjald).
Bókun á tveimur húsum
Meira en 28 dögum fyrir komu: Full endurgreiðsla (100%).
Frá 14 til 28 dögum fyrir komu: 50% afbókunargjald.
Innan við 14 dögum fyrir komu: Engin endurgreiðsla (100% afbókunargjald).
Bókun á þremur, eða fleiri, húsum
Meira en 70 dögum fyrir komu: Full endurgreiðsla (100%).
Frá 42 til 70 dögum fyrir komu: 50% afbókunargjald.
Innan við 42 dögum fyrir komu: Engin endurgreiðsla (100% afbókunargjald).
3. Óendurgreiðanlegar bókanir
Þegar bókað er á óendurgreiðanlegum kjörum skal greiða bókunina að fullu við staðfestingu. Slíkar greiðslur fást ekki endurgreiddar.
4. Innritun og útritun
Innritun: Frá kl. 16:00
Útritun: Fyrir kl. 11:00
Innritun fyrir kl 16 eða útritun eftir kl 11 er möguleg eftir samkomulagi, háð því hvort laust sé og mögulegu aukagjaldi.
5. Aldurstakmark og ábyrgðaraðili bókunar
Sá sem bókar gistingu þarf að vera að minnsta kosti 25 ára, vera sjálfur meðal gesta og vera viðstaddur innritun.
Bókanir fyrir þriðja aðila eru aðeins heimilar með fyrirfram fengnu skriflegu samþykki frá Heiðin ehf.
Gestir kunna að þurfa að framvísa gildum persónuskilríkjum, svo sem vegabréfi eða ökuskírteini.
Heiðin ehf. áskilur sér rétt til að synja innritun án endurgreiðslu ef ábyrgðaraðili bókunar uppfyllir ekki þessi skilyrði.
6. Gisting og hámarksfjöldi gesta
Hámarksfjöldi gesta í hverju húsi er átta manns.
Óheimilt er að gista á lóðinni í tjöldum, hjólhýsum, húsbílum, fellihýsum eða sambærilegum búnaði. Slík farartæki og búnaður eru ekki leyfð á lóðinni.
7. Umgengni og húsreglur
Við biðjum gesti okkar að ganga vel um húsin, sýna nærumhverfinu virðingu og taka tillit til annarra gesta.
Reykingar eru bannaðar innandyra.
Gæludýr eru ekki leyfð.
Vélsleðar og fjórhjól eru ekki leyfð á lóðinni.
Gestir skulu forðast hávaða og aðra hegðun sem getur valdið ónæði.
Brot á þessum reglum geta leitt til þess að dvöl verði slitið án endurgreiðslu.
8. Ábyrgð og skaðabætur
Gestir bera ábyrgð á tjóni sem þeir valda á húsnæði eða búnaði meðan á dvöl stendur. Innheimta kann að fara fram vegna viðgerða eða endurnýjunar á skemmdum munum.
Heiðin ehf. ber ekki ábyrgð á truflunum, töfum eða óþægindum sem verða vegna óviðráðanlegra aðstæðna, svo sem óveðurs, náttúruhamfara, verkfalla eða farsótta.

