Upplifðu Norðurland

Map showing a route from an airport to a location near a lake or water body, passing through Akureyri in Iceland.

Heiðin er staðsett í fallegu og friðsælu umhverfi í Vaðlaheiði, í aðeins 6 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Akureyrar

Í næsta nágrenni er fjölbreytt úrval af afþreyingu. Þar má meðal annars nefna Skógarböðin, sem eru í um 4 mínútna akstursfjarlægð frá Heiðinni.

Luxury infinity pool at sunset overlooking a forest and mountain range, with modern wooden and concrete structures and decorative rocks.

Skógarböðin

4 mínútna akstur - 35 mínútna gangur

Skógarböðin eru einstakur baðstaður í fallegu skóglendi í Eyjafirði, skammt frá Heiðinni.

Böðin opnuðu árið 2022 og bjóða upp á rúmgóðar útisundlaugar með stórbrotnu útsýni og kyrrð.

Þar er einnig að finna bar ofan í lauginni, kalda laug, gufubað og veitingastað.
Sjá meira á: forestlagoon.is

Aerial view of a coastal town with modern buildings, colorful houses, and a marina with sailboats, situated next to a calm body of water.

Akureyri

6 mínútna akstur - klukkustundar ganga

Í miðbæ Akureyrar má finna fjölbreytt úrval verslana, kaffihúsa og veitingastaða. Meðal áhugaverðra staða má nefna Akureyrarkirkju, Hof menningarhús, Lystigarðurinn og Sundlaug Akureyrar

Sjá meira á: visitakureyri.is

Map of Hliðarjall mountain ski resort showing ski trails, lifts, facilities, and landmarks, with directions and height information.

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli

16 mínútna akstur

Hlíðarfjall er eitt vinsælasta skíðasvæði landsins og er staðsett í fjallshlíðunum fyrir ofan Akureyri.

Á svæðinu eru 24 skíðaleiðir með mismunandi erfiðleikastigum og átta lyftur, þar á meðal tvær stólalyftur sem ná upp í yfir 1000 metra hæð.

Við skíðasvæðið er að finna skíðaleigu, kaffihús og rúmgóð bílastæði.

Hlíðarfjall hentar jafnt skíðaiðkendum sem snjóbrettaiðkendum og yfir sumartíman býður svæðið upp á skemmtilegar fjallahjólaleiðir.

Sjá meira á: hlidarfjall.is